25október

Mín Skođun!

Þetta er ansi dauð bloggsíða !!
25. október 2006 klukkan 02:50
Katrín María
1 athugasemd
17september

Jćććja.

Ástæða mín fyrir litlu bloggi er mjög góð. ég nenni því eiginlega ekki.
En það sem drifið hefur á daga mína síðan ég bloggði síðast er náttúrulega verslunaramannhelgin sem var ágæt þó hún hafi ekki beint farið eins og ég planaði. Fyrsta planið var að fara til Eyja. En þar sem peningarvandamál stóðu í veginum datt mérí hug að fara tilAkureyrar með Ara, Ragga og Dabba á föstudeginum en þeir nenntu ekki á föstudeginum og ætluðu á laugardeginum , en nei nei þá voru öll tjaldstæði full. Þá áfumst við upp og fórum bara til Gumma að grilla og éta og éta og horfa á Beaves og Butthead sem ég skemmti mér stórkostlega við að gera. 
Svo byrjaði skólinn mér til mikillar ánægju þar sem ég fékk loksins að hitta stelpurnar aftur eftir langan og erfiðan söknuð. En námsefnið og heimalærdómurinn er ekkert mitt uppáhald en þetta þurfa víst flestir að ganga í gegnum. Samt gaman að koma aftur í skólann og sjá alla aumi busana sem vita ekki neitt. Og það er bara ár síða ég var svoona mikill auli. Svo var líka busaballið sem varíkt skemmtilegt. Ég ætlaði að vera geggjað dugleg að taka nýju myndavélina meðog taka fullt af myndum. En svo nennti ég ekkert að vera að sveifla myndavélinni í hausinn á fólki og svoleiðis leiðindiannig ég tók svona þrjár myndir úr fyrirpartýinu. Annars hefur lítið annað gerst. Fór í salpartý í gær. Frekar leiðinlegt þar. Fór bara snemma. Aðeins of eki kúl fyrir mig.  
En ég kveð þá bara að sinni. Blessó

*Sjáumst Kata
17. september 2006 klukkan 00:20
Katrín María
Engin athugasemd
26júlí

Fyrirsögn!

Já sæl.
Helgin hjá mér síðasta var bara hin fínasta. Var að vinna á föstudeginum til hálf ellufu. Þá fór ég til Ragga og þar var Ari og við horfðum á Hooligangs, sem var fín sko. Reyndar ekkert nema slagsmál. en anyways. Þegar myndin var búin fóru ég og Ari útúr bænum í útileguna okkar. Keyrðum eitthvað útúr bænum og gistum rétt hjá Selfossi. Komum þangað klukkan svona hálf þrjú. vaknaði svo um átta um morgunin við sms. Frétti þá að Emilía var að eignast strák. Þá var ég íkt kát. Svo keyrðum við á Hellu og ætluðum að heimsækja Hildi mína en hún þurfti endilega að vera í bænum. Þá keyrðum við bara á KirkjubæjaKlaustur og hittum Hófý mína eftir langa fjarveru. Ekkert smá gaman að hitta hana loksins. Svo kom Raggi og hitti okkur hjá Hófý og þeir félagar Ari og Raggi ætluðu að veiða eitthvað en ekkert veiddist. Þannig þá héldum við bara í Vík og tjölduðum þar. Svo var grillað með geðveiku grillunum sem Raggi keypti. Og Grilluðum hreindýrakjöt. Raggi alltaf jafn frumlegur og Hamborgara Átum samt ekkert voða mikið ahreindýrinu þar sem það tók mjöög svo lagnan tíma að grilla það. Alltaf að hella kveikivökva yfir grillin til fá smá eld og Action í þetta. En það endaði bara með hamborgurum með kveikivökvakeim. Alveg yndislegt. Svo var bara tjillað og mikið spáð í hvort kveikivökvinn hefði spillt okkur eitthvað. Svo tók Raggi upp vindlana og þeir drengir gæddu sér að þeim spesleika. Svo tjaldaði ÉG tjaldinu hans Ragga pínulitlu drasli. Svo var farið að sofa eftir miklar umræðu og pælingar og gott tjill.
Morgunin eftir vöknuðum við svona líka eldhress og ég skellti mér í sund og strákarnir í fótbolta og svo var haldið heim. Raggi fór aleinn heim en ég og Ari fórum á Geysi að heimsækja Þunnu Svölu. Ekkert smá gaman að hitta hana. Svo fórum við bara heim.
Þegar ég kom heim var Emilía þar og ég fékk að sjá litla strákinn. Sætasti í heiminum.

Svo á mánudagsmorgunin var ég vakin snemma að um tíuleytið af litlu krökkunum Gurúnu Erlu og Viktori Mána. "Þau voru bara alein, engin heima nema ég".. æj greyin þannig þau komu bara og kúrðu hjá mér og við horfðum á video. Svo var ég víst búin að lofa þeim að fara með þau í bíó á Over the Hedge. Og ekki gat ég nú svikið það. Þannig þá var Haldið í bíó klukkan fjögur. Alveg ágætismynd, Over the Hedge kannksi aðeins skemmtilegri á ensku en íslensku. En hvað um það. Svo fór ég bara heim og hitti Kristínu mína og fór í ljós með henni. og Fengum okku svo McDonalds. Svo kom Ari og við fórum bara að Horfa á Notebook.uppáhladsmyndin mín ;P. Svo bara Langþráður svefn.

En í Dag á hún Kristín mín Sæta Afmæli. Til hamingju með það ástin. Þykir Svaka vænt um þig <3
Picture012.jpg
Á árshátíðnni Sæta mín
 
               Tvær Gamlar líka
En Síjú gæs!

*Sjáumst Kata
26. júlí 2006 klukkan 03:44
Katrín María
1 athugasemd
13júlí

Helgar.

Jæja blogg segiði?

Fyrsti helgina í júlí lagði ég leið mina á Færeyska daga í Ólafsvík, eins og svo margir aðrir. En því ég þurfti endilega að vera að vinna um kvöldið þá fóru ég og Kristín Samferða Thelmu eftir vinnu í Yaris Dollunni hennar. Komum e-ð um tvö leitið í Ólafsvíkina og hittum Ara og Bjögga þar. Ég og Ari rákumst líka á Hilmi þar og svo sá maður fullt af liði sem maður þekkti misvel. En sú helgi var alveg mjög svo skemmtileg fyrir utan nokkrar mínutur sem við fengum ekki ráðið við, eins og oft þegar áfengi á í hlut. En samt komum við öll heim sátt og þreytt. Ég myndi nú ekki hika við að setja myndir úr ferðinni ef Kristín Auli hefði ekki gleymt myndavélinni í bílnum. Þannig við tókum engar myndir. Frekar fúllt.

 

En nannars er nú ekki mikið að frétta af mér. Bara búin að vera að dandalast útum allt með Kristínu síðan ég fékk bílprófið mitt. Kíktum í Kringluna um daginn á útsölurnar, keypti mér Carhartt peysu geðveikt flotta, tými ekki að fara úr henni, Kristín keypti sér líka ýmislegt., alltaf gaman að versla sér svona föt..

Fór reyndar og hitti Svlu mina í gær á Laugarveginum, alltaf gaman að hitta hana sérstaklega þar sem ég hef ekki hitt hana síðan að skólinn hætti sökum vinnu. En alla vega var Laugarvegsgangan mín í styttri kantinum því ég átti svo lítin stöðumælapening. En samt æði að hitta hana.

 

Næstu helgi er planið að fara á staffadjamm sem er e-ð á þá leið að skella sér á hestbak, grilla mikin mar eftir vænan reiðtúr og fara svo í eftir patry ig skemmta sér gífurlega þar. Ég er bara ekki frá því að þetta verði íkt skemmtilegt. Hlakka alla vega rosa til. Svo bara vinna á sunnudegirum á eftir. Það verður skrautlegt.

 

Helgina þar á eftir er planið að fara með Ara og Ragga og jafnvel fleirum í útilegu föstudag til sunnudags. Grilla og hafa það kósý ,Kíkja svo til Hildar og Hófyjar í vinnuna þeirra útá landi og jafnvel til Svölu líka. Það verður eflaust líka gaman.

 

En alla vega sé ykkur!

 

*Sjámst Kata!

13. júlí 2006 klukkan 22:09
Katrín María
Engin athugasemd
28júní

Mál til Komiđ !

Jæja þá er ég komin heim frá Bandaríkjunum. Reyndar fyrir löngu, alveg tíu helium dögum.

Lítið hefur samt gerst hjá mér undanfarið. Bara vinna á kvöldin og sjilla e-ð á daginn. Maður gæti sagt að það væri alveg ágætis dill. En hann er það ekki til mikillar lengdar get ég sagt ykkur. En hvað um það ? 

En svona til að segja stuttaralega frá Floridaferðinni minni. Er hún á þessa leið. Fyrri vikan fór mikið í að versla og vera í mollum. Sem mér fannst mjög gaman, alltaf gaman að versla. Sú vika fór einnig í það að fara í skemmtigarða við fórum í tvo heila daga í Universal Studios þannig við vorum ekki að nenna líka í  Disney World þannig við slepptum því bara. En já hún Kata litla og lofthrædda fór í tvo stærstu rússbanana í garðinum. Fóru á hvofl og allt. Frekar stolt af sjálfri mér að sigrast á óttanum! Dugleg ég.

Seinni vikan var á þessa leið að við forum í annað hús til að sofa í sem var í Naples. Rikramannabær dauðans með strönd. En þá vikuna ringdi í þrjá heila daga. Og ekki var nú mikið um sólböð á þessum þremur dögum frekar en fyrri vikuna. Svo kom langþráður sólardagur og við öll útá strönd í sólbað. Ætluðum sko að fá einhverja brúnku í útlöndum, lágum í sólinni stanslaust í þrjá klukkutíma því rigningu var spáð daginn eftir. En hvað fær maður uppúr græðgi? Ekkert get ég sagt ykkur. Þannig við brunnum öll og þorðum ekki útur húsi daginn eftir þar sem það var brjáluð sól. Týbískir Íslendingar.

Svo á laugardeginum forum við heim brennd en sátt heim. En allt heila flugið var einhver ókyrrð í loftinu eins og Hilmir Flugmaður orðaði það. Þannig að flugvélin hristist meira og minna alla leiðina heim. Samt gaman!

florida0116.jpg florida0151.jpg
 Rússíbanarnir sem eg þorði í!

En núna í vikunni áttum ég og Ari minn “afmæli” samasem, við erum búin að vera saman í ár. Heilt ár er svolítið mikill tími ef maður hugsar útí það. En það er bara gott. Ég er alla veg abúin að vera rosa hamingjusöm í heilt ár,vona að það sé ekkert að fara að breytast.

En núna um helgina ætlum ég og Kristín mjög líklega að skella okkur á færeyska daga. Ef allt gegnur eftir. Vona það! Langt síðan maður fór svona útá land að skemmta sér. Svo verða það kannksi bara Eyjar um Verslunarmannahelgina. Alla vega er ekkert að stoppa mig nema vinnan. Ætli maður reddi því ekki bara? Jújú.

En þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra


 

*Sjáumst Kata

28. júní 2006 klukkan 20:18
Katrín María
Engin athugasemd
07júní

Florida!

Jæja nú er ég stödd á Florida, reyndar geðveikt þreytt eftir að hafa farið í svona sjötíu rússíbana í dag í Universal Studios og á morgun er það Disney og svo á hinn aftur Universal, fullt af rússíbönum og heilmikil þreyta. 
En í gær fórum við öll að versla og ég keypti alveg fullt fullt af fötum. Frekar ánægð með hvað allt er svakalega ódýrt. Keypti mér líka Apple tölvu. Elska hana nú þegar. 
En annars  er bara búið að vera geðveikt gott veður. Frekar heitt og mikil sól en engin brúnka hefur enn komið í ljós. Frekar spælandi. En ég held bara að þetta komi allt með tímanum. Vona það alla vega.
húsið sem við erum í er risastórt með sundlaug í garðinum. Frekar ánægð með það. En hér er líka allt í pöddum og eðlum og pöddurnar eru ekkert smeykar við það að skríða uppá mann allan og koma sér fyrir. Ógeð!
Í kvöld borðuðum við á Taco Bell ekkert smá góður matur! Guðjón skilur mig. Svona Tacco mexíkanst afnið segjir sig smá sjálft. 
En ég held ég segji þetta gott í dag. Ætla að skella inn einni mynd af mér og Brynjari Inga hérna í lokin
   

Sakna allra sem heima eru óendanlega mikið. Hlakka til að koma heim. Lov Jú!
   
Sjáumst Kata*
07. júní 2006 klukkan 06:12
Katrín María
1 athugasemd
30maí

Ökuţór?

Jáhá. Kata er komin með bílpróf. Eftir endalaust suð og nauð frá mömmu síðustu tvo og hálfan mánuð. Loksins!. Fór í prófið klukkan átta í morgun, kennarinn kom að sækja mig klukkan korter yfir sjö. Alltaf hressandi að vakna snemma á morgnana. Þó svo að mér hafi kannksi ekkert gengið sem best í verklega prófinu, náði ég samt sem áður og fæ bleikt ökuskírteini eftir aðeins örfáa daga.

En núna á föstudaginn eftir nákvæmlega þrjá daga eða sextíu og sjö klukkutíma. Held ég að sé reiknað rétt hjá mérfer ég út til Florida. Og það þýðir aðeins eitt. Að ég fæ Apple tölvuna mína eftir aðeins fáa daga og ég get verslað af mér rassgatið. Fullt áf nýjum fötum og tonn af skóm. Svo ætla ég ekki að eiga neina peninga í sumar því ég eyði þeim öllum úti.

En eins og ég sagði. Ég lofa engu góðu bloggi! Þannig ég ætla ekki að reyna meir í bili. Alla vega ekki í dag!

Sjáumst Kata*

30. maí 2006 klukkan 22:48
Katrín María
Engin athugasemd
25maí

Ágćtis Byrjun!

Já ég verð að játa það að sumarbyrjunin mín er ekki kannski eins og ég hefði helst kosið. Ég verð að segja að mér skítleiðist. Hófý að vinna á Klaustri, Svala á Geysi og Hildur á Hellu og Ari vinnur frá níu til sjö. Og þar sem ég hef aðeins eina vinnu og það er í Laugarásbíó. Þá vinn ég nú ekki mjög mikið á daginn.Og því ég asnaðist ekki til að taka bílprófið mitt fyrr þá hef ég ekki bíl. Hagni heima og hofri á Desprite Housewives og L.O.S.T . En vinnan í Laugarásnum er samt mjöög skemmtileg!

En alla vega þá tók ég Bóklega bílprófið mitt núna um daginn og viti menn og konur ég náði. Ég var nú alveg með það á hreinu að ég myndi fall einu sinni ef ekki tvisvar. En ég skítnáði þessu. Kallin var samt alveg rosalega lengi að fara yfir prófið og sagði mér ekkert hvað ég fékk margar villur. Kannksi var hann eitthvað að sleppa mér fyrir horn. Hver veit ? Kannski fannst honum ég sæt? Þó ég efi það stórlega! En alla vega þá er það búið og ég fer í verklega eftir viku. Bömmer ef ég fell á því maður! En svona talandi um próf þá vil ég aðeins fá að monta mig. Ég náði öllum prófunum!! Meira að segja stærðfræði sem ég var alveg búin að bóka fall. Bjóst reyndar líka við falli í Frönsku og Dönsku En hún Kata náði öllu saman.
Svo var lokaball Kvennó sautjánda Maí. ÞAð var geðveikt skemmtilegt. Sumir voru fullir en aðrir ekki og svo voru líka þeir sem voru bara léttir. Ég held að þeir hafi skemmt sér sem allra best!
En núna eftir eina viku og tvo daga fer ég til Flórída með Ara mínum og hans hele famelie. Það verður geðveikt gaman verðu í sextán daga og gistum í geðveikt flottum einbýlísthúsum á tveimur hæðum. Geðveikt !! Svo er planið að þegar heim er komið að fara í roadtrip með nýja bílprófið og Ara að heimsækja stelpurnar mínar. Svölu, Hildi og Hófy og gefa þeim eitthvað skmmtilegt. Þannig stelpur þið megið eiga von á mér um eða rétt fyrir mánaðamót þar sem ég kem heim átjánda júní! Svo kíkir maður kannksi líka á hana Hrefnu í Mosfellsdalinn. Hver veit ?

Sjáumst Kata *

25. maí 2006 klukkan 18:08
Katrín María
Engin athugasemd
24maí

Hć, ég heiti Kata!

Jamm þar sem þetta er mín 4 tilraun að gera síðu þá lofa ég engu góðu bloggi Glottandi

Sjáumst Kata*

24. maí 2006 klukkan 23:52
Katrín María
Engin athugasemd

Auglýsing

Leit